Bloggsvæði Elvu

Elvis lifir !

30.01.2008 22:41:51 / Tony

Ég hef verið svo miður mín.......

.......yfir því að það sé búið að hrinda honum Degi mínum úr borgarstjórastólnum að ég hef ekki getað skrifað neitt hér inn síðan .......jú og kannski ekki í langan tíma áður ,hef fundið þetta á mér :|

Annars er allt gott að frétta af okkur héðan af Roskildevej eins og venjulega .

Þúsund þakkir fyrir allar afmæliskveðjurnar þann 21. jan ,ekkert smá gaman að fá kveðjur hér inn og milljón sms ...þúsund þakkir ! Magnað hvað krísan var miklu minni núna fyrir þetta afmæli heldur en þarna fyrir 2 árum ,þegar ég datt í nýjan tug . Nú er ég bara sátt og hægðarlyf og hrukkukrem eru bara orðinn hluti af daglega lífinu. Held svo bara áfram að aflita en þarf að fara að læra að drekka sherry ......ætli ég fái svo ekki flókainniskó í jólagjöf !

Þuran mín var hérna hjá okkur um helgina ,ekkert smá gaman að fá hana í heimsókn og fara með henni á tjúttið ,takk fyrir komuna Þura mín !

Svo er það Århus/Lystrup um helgina þar sem við ætlum að eyða helginni með Heiðrúnu frænku og fjölskyldu .

Over and out

Inger

ps. takk mamma aftur fyrir sendinguna og afmælisgjöfina :haha: Snilldar diskar !!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 18:25:10 / Tony

Hahahaha..............

Hjá lækninum Guðrún fór í læknisskoðun á heilsugæslustöðina. Læknirinn byrjaði á að spyrja hversu þung hún væri og Guðrún sagðist vera 55 kg. Læknirinn lét hana þá stíga á vigtina sem sýndi 94 kg. Næst spurði læknirinn hversu há Guðrún væri. 168 cm svaraði hún. Læknirinn bað hana að standa upp við vegg og mældi hana með þar til gerðu málbandi. Niðurstaðan var 155 cm. Því næst mældi læknirinn blóðþrýstingin hjá Guðrúnu og tilkynnti henni að þrýstingurinn væri allt of hár. Nú var nokkuð fokið í sjúklinginn sem sagði æst í bragði: Já ertu eitthvað hissa á því. Þegar ég kom hingað var ég há og grönn og núna er ég orðin lítil og feit.....

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.12.2007 13:44:17 / Tony

God jul

Gleðileg jólin allir saman og hafið það sem allra best um hátíðarnar ! Munið að éta og drekka líkt og  enginn sé morgundagurinn !!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 17:05:17 / Tony

Stebbi þó !!!! (af vísi.is)

 
Stefán þór steindórsson Innsláttarvilla breytti jólakveðju í klám. Fréttablaðið/Völundur

Stefán Þór Steindórsson flýtti sér einum of í jólastressinu og sendi óvart rafrænt jólakort á vini og vandamenn með tengil á klámsíðu.
„Ég samdi jólalag og sendi það í jólalagakeppni Rásar 2. Lagið komst ekki áfram svo ég skellti því bara inn á MySpace síðuna okkar," segir Stefán sem er í hljómsveitinni Mekbuda. „Svo ákvað ég að senda slóðina á alla á msn-tenglalistanum mínum sem skráðir voru inni þá stundina, sem voru í kringum fimmtán manns. Ég sagðist ekki ætla að senda jólakort í ár en senda heldur jólalag til fólks með þessum hætti," segir Stefán. Þennan texta afritaði hann og sendi jafnóðum á msn-vinina.
„Fljótt byrjuðu allar línur að blikka neðst á skjánum. Ég hafði þá óvart víxlað stöfum og skrifað mypsace.com í stað myspace.com. Sem er pínleg innsláttarvilla þar sem mypsace er klámsíða," segir Stefán. Í stað jólalagsins tók fáklædd kona á móti vinunum sem áttu von á jólakveðju frá Stefáni sem nú sat rjóður og íhugaði hvort skeytið hefði nokkuð lent í óviðeigandi höndum. „Þetta slapp nú nokkuð vel. Sem betur fer fengu engin börn þetta!" segir Stefán. „Mamma var ekki skráð inni en hefði örugglega bara hlegið. Verst hefði verið að senda þetta á einhverjar tíu ára frænkur."
Viðtakendur jólakveðjunnar tóku henni þó vel en skildu fæstir hvað lá að baki og fannst þetta ansi sérstakur brandari. Þeir fengu að lokum að heyra jólalagið sem svo klaufalega gekk að kynna. „Sumir eru rosa ánægðir með lagið og textann sem fjallar ekki um jólagleðina heldur neysluhyggju jólanna, jólaspikið, óvelkomnar gjafir og slíkt. Aðrir kjósa þó fremur hefðbundinn jólatexta," segir Stefán. Lagið Jólafár má heyra á netsíðunni www.myspace.com/mekbuda. -e 

 

Haha:lol: þetta var hann Stebbi vinur okkar (maðurinn hennar Þórhildar vinkonu ) sem að lenti í þessari skemmtilegu uppákomu sem rataði inná vísi.is....

Endilega kíkið á jólalagið sem er með eindæmum dramatískt !!!



» 1 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 21:16:41 / Tony

Hann...

..Máni Blær minn (já og foreldrar hans lika) er kominn til okkar og verður í  heila viku !

Mikið óskaplega er gaman að hitta pjakkinn loksins aftur (já og foreldra hans lika) :D

Ætla að njóta þessarar viku í botn :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 13:32:07 / Tony

Pikk-upp línur ...

....stal þessum p.línum af annari síðu ,hrikalegar

Ég vildi að þú værir leikfangahesturinn á Umferðarmiðstöðinni þá gæti ég verið á þér allan daginn  fyrir klink. 

- Kallaðu mig bara mjólk. Ég geri líkama þínum gott.

- Viltu í glas eða kannski bara peninginn?

 - Ég er kannski ekki sá allra sætasti á svæðinu en ég er sá eini sem er að tala við þig.

- Eigum við að koma að leika hús? Þú mátt vera svalahurðin og ég skelli þér alla nóttina.

- Ég er nýfluttur í bæinn. Geturðu sagt mér í hvaða átt heimili þitt er?

- Ég elska hvert bein í líkama þínum, sérstaklega mitt.

Hann: Má bjóða þér upp í dans?
Hún: Mér finnst þetta leiðinlegt lag og langar heldur alls ekki að dansa við þig.
Hann: Þú hefur misskilið mig. Ég sagði að þig skorti allan „elegans“.

- Ef hægra lærið á þér væri aðfangadagur og það vinstra gamlársdagur mætti ég þá heimsækja þig á milli jóla og nýárs?

- Þú ert kannski ekki sú sætasta hérna en fegurðin er bara í slökkvara fjarlægð ...

- Hæ, ég er líksnyrtir. Hvernig ertu í því að þykjast dauð?

- Sú staðreynd að ég er að missa tennurnar þýðir bara að það verður meira pláss fyrri tunga í þér.

 

 

 ..hehe vona að enginn sé að nota þessar !

Mannst þú eftir einhverjum verri?????


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 23:10:52 / Tony

Hún....

..móðir mín elskuleg 60 ára afmæli í dag 3 desember ! Til lukku með daginn !!!!!!!!;);););););););););););););););););););););););););););););););)

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 21:01:13 / Tony

Danskurinn er spes (af Vísi,is)

Þau slys sem verða á jólahlaðborðum danskra fyrirtækja teljast til vinnuslysa. Þetta hefur Jótlandspósturinn eftir samtökum atvinnulífsins í Danmörku.

Fyrsta stóra jólahlaðborðshelgin var nú um helgina í Danmörku og hafði dönsk lögregla í nógu að snúast vegna þess, bæði vegna slysa, áfloga og ölvunaraksturs veislugesta.

Fram kemur á viðskiptavef Jótlandspóstsins að atvinnurekendur beri alla ábyrgð á slysum og meiðslum sem verða á jólahlaðborðum í fyrirtækjum þeirra og flokkast slíkt sem vinnuslys.

Sama gildir þótt starfsmenn séu kófdrukknir og slasist eftir að hafa dansað uppi á borðum og jafnvel þótt atvinnurekandi hafi ákveðið að bjóða ekki upp á áfengi í jólahlaðborði en starfsmenn hafi það um hönd ber atvinnurekandinn samt ábyrgð á slysum sem verða á samkomum sem þessum.

 

:$Þetta er ótrúlegt alveg !´Við vorum einmitt á julefrokost með street cut genginu á laugardaginn og voru engin slys á fólki .....en ætli maður geti kallað 2 daga þynnku vinnuslys ??? Ja maður spyr sig svona á mánudegi.....8|8|8|


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 21:14:12 / Tony

Elva Björk Magnúsdóttir ...

...heiti ég og er bara mjög ánægð með það :lol:

það er nefnilega ekki erfitt fyrir útlendinga að segja nafnið mitt ,þannig að ég hef ekki lent í neinu tjóni með það hér i Danmörkinni...........annað en sumir hér í fjölskyldunni :lol:

Hann Gummi minn er ekki jafn heppinn ,nafninu hans hefur verið alvarlega misboðið nokkrum sinnum !!! Á td. debetkortinu  heitir hann  GU  MUNDUR  OR  OR  ARSON

á öðru korti heitir hann GUBMUNDUR THOR

í tölvukerfinu hja heilsugæslunni heitir hann  GUYMUNDUR 'YÓR

Svo mætti lengi telja ,ófá umslög sem hafa lent í ruslatunnunni með einhverri skjældri útgáfu á nafninu sem ég man ekki akkúrat eftir núna .

Annað sem er verra að hann hefur oft ekki fundist í tölvukerfum sökum þessara síendurtekinna útúrsnúninga á nafninu ...sem er annars ekkert nema fallegt nafn .......

Í vinnunni er hann kallaður GUMMI en í skólanum  og í fótoltanum hja Enok er hann kallaður THOR ....að beiðni gelgjunnar Enoks !

Þegar Enok byrjaði í skólanum og var spurður hvað foreldrar hans hétu ,þá sagði hann : mamma heitir Elva ,og pabbi minn heitir .....uhh ...THOR !!! ;) Litla gelgjan vissi nefnilega að orðið ''gummi'' væri nefnilega líka notað yfir smokka ,og ekki ætlaði hann að láta stríða sér á þessu þannig að hann var fljótur að hugsa þarna !!!

Enok og Antonia eru líka heppin með sín nöfn , ekkert verið að skæla þau neitt þannig ,eftirnöfnin eru reyndar aldrei notuð ,en það var svo sem ekki alltaf gert heima heldur . Antonía er reyndar yfirleitt kölluð Toni á leikskólanum.

Ég á samt pínku erfitt með að venjast því að ég eigi tvo menn Gumma og THOR ...fer svona eftir því hvar við erum stödd hverju sinni . En Gummi og Thor eru báðir yndælis menn,þeim semur vel og elska ég þá báða !!!! :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 21:16:43 / Tony

Já það eru fleiri flottir ..........

....en bara Dagur ....Hann Enok minn er sko flottur á því þessa dagana !

:) Honum gengur mjög vel í fótboltanum og er orðinn annsi marksækinn. Liðið hans Islev Boldklub varð í 2 sæti á mótaröð sumarsins ,og átti Enok góðann þátt í því !

 

:) Krakkarnir í Valhøj skole voru látin þreyta músíkpróf í september til að sjá hver þeirra hefðu gott eyra fyrir músík og þess háttar, því planið var að stofna skólahljómsveit (lúðrasveit) í Valhøj skole . Enok gekk svona vel að það kom bréf frá skólastjóranum hingað heim og í því stóð að Enok væri boðið að taka þátt í að búa til skólahljómsveitina og mætti koma og velja sér hljóðfæri til að spila á . Enok þáði að sjálfsögðu boðið og spilar nú á alt-horn í hinni nýstofnuðu skólahljómsveit ásamt um 20 öðrum krökkum !

 

:) Enok tók þátt í heimildarmyndargerð í síðustu viku ! Hér i Rødovre  býr íslenskur maður sem er að læra heimildarmyndargerð . Hann er nú að búa til mynd um það hvernig erlendum börnum gengur að aðlagast í Danmörku . Malina gamli kennarinn hans Enoks úr móttökubekknum benti honum á Enok ,að hann væri mjög gott dæmi um barn sem hafi aðlagast hratt og vel. þannig að Enok var í viðtlali hjá honum í síðustu viku og gekk vel . Hann var spurður ýmissa spurninga og ein af þeim var : hvað er það sem gengur verst með hér í Danmörku ??? ...Uhh . það gengur nú verst með Danska landsliðið !!! svaraði hann :haha:

Enok er duglegur strákur ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 11:20:34 / Tony

Dagur er fagur (part 2)

Gummi: guð minn góður Eva ,hann Blaður vinur þinn er orðinn borgarstjóri !!!!!!                   Mikið óskaplega finnst mér skemmtilegt og ánægjulegt að Reykjavíkurborg sé komin með fallegan borgarstjóra !  En og sumir vita þá hef ég alltaf verið með smá svona 'thing' fyrir honum Degi og því þykir mér þetta einkar ánægjulegt ! Eins og allt skynsamt fólk veit að þá haldast FEGURÐ -skynsemi-gáfur-og allmenn réttlætiskennd alltaf í hendur ....þannig að þettt veit bara á gott ! Einhver komment komu hér í síðustu færslu sem ég skrifaði um hann Dag minn að hann væri álika kynþokkafullur og herðatré eða eitthvað álíka ....sem betur fer höfum við ekki öll sama smekk .......:D

» 8 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 21:02:31 / Tony

ég heiti Elva og ég er tölvufíkill .........

........hæ Elva tölvufíkill !

Úff ...2 vikna netleysi ,það er sko ekkert grín fyrir netfíkil eins og mig ! Þetta var eins og að fara í afvötnun bara ...net afvötnun ! Fyrstu dagarnir voru vestir ,fráhvörfin fóru illa í mig ,skjálfti ,eyrðarleysi og allmenn leiðindi gerðu vart við sig ...mér fannst ég vera að missa af svo miklu ,eitthvað merkilegt myndi ske og ég yrði sú eina sem myndi missa af því ......hélt að e-mailið mitt yrði svo troðfullt af merkilegum pósti þegar ég loksins tengdist netheimum á ný ..........uhhh nejjjj ,ég er víst bara algerlega að misskilja þetta eitthvað :-/  Jú jú slatti var af pósti ,en enginn sem gaf ástæðu til að vera svona spennt og tennsuð ....jú reyndar einn ,netklúbbur HM bauð mér 10% afslátt af buxum akkúrat í fyrstu netlausu vikunni ....og ég missti af því !!!

En ástæðan fyrir netleysinu er svipuð og með símana ,vorum að skipta um netfyrirtæki ! Það tekur sko allt tíma hér i Danmörkinni ,td. gáfu þér sér 3 vikur til að tengja netið hja nyja kompaníinu (komu reyndar eftir  2 ,elskurnar) Og svo fengum við bréf frá þeim um að þeir kæmu að tengja þann 11 okt .....á milli kl. 7.30 og 16.30 og báðu um að einhver yrði heima annars yrði ekki tengt og hvað þá á næstunni ! Snillingar !!! Gummi hringdi og spurði hvort ekki væri sjéns á að þeir gætu hringt svona hálftíma ,klukkutíma áður en þeir kæmu ...nobb ,ekki sjéns ! Þannig að Gvedur var í ' veraheimaogtakaámótinetköllunum' fríi í dag ! En já nú er allt gott á ný !!!

Annars er allt gott af okkur ,tóm hamingja og gleði ....

Menningarnótt á morgun ,ætlum í bæinn með Hönnu og Finn ...

Gwen Stefani tónleikar með Söschu á sunnudag .......

Lífið er ljúft !!!!!!!!!!!!!!!!!! :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 16:05:25 / Tony

Ný símanúmer

Við höfum sagt okrurunum hjá símafyrirtækinu TDC stríð á hendur og fært okkur yfir til ódýrara fyrirtækis ,þess vegna erum við komin með ný símanúmer ,það var ekki hægt að flytja númerin á milli !!!

 En nýju númerin eru :

Elva : 22917653

Gummi : 22924376

Hilsen Inger


» 9 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 15:57:23 / Tony

Sprellllllifandi !!!!!!!!!!!!!!!!!

Já já ég er ekki dauð ,ég hef bara alls ekki nennt að blogga ,svo einfalt er það ,bæði sökum tímaskorts og svo var ég þreytt á commentaleysi ,en það er önnur saga ! Ég ætla að reyna að koma mér i gírinn aftur . Hef stundum alveg verið komin með heilu færslurnar í höfðinu en ekki nennt að pikka þær inn ,svona er nú það !

Hér er alltaf  nóg að gera ,og síðan ég skrifaði síðast höfum við fengið góða gesti ,tengdó frá Stokkseyri komu í 4 daga og höfðum við það mikið huggulegt saman ,fórum td. á tónelika með stór-sjarmnum og kyntröllinu Thomas Helming og er sá maður með sporin á hreinu ,það ´held ég nu !8) Svo komu saumaklúbbs vinkonur af skaganum í Köben-saumó til mín og var það mikið gaman. Þær voru með flotta íbuð úti bæ og höfðu það mikið gott . Komu svo í 80' party til mín á laugardeginum uppstrílaðar og flottar ,alveg túperaðar til andskotans !!! Drukkum við alla liti af Coctailum hér heima og skelltum okkur svo í bæinn. Fórum á stað sem heitir Renome og dönsuðum þar fram eftir ,klæddar alveg eins og bjánar ,ég hefði td. getað rotað einhvern með toppnum á mér :haha: Það var nú aðeins horft á okkur ,verð nú að viðurkenna það .....allavega hefur starfsfólkið tekið eftir okkur því þeir voru nú svo frumlegir og höfðu 80' þema á staðnum laugardagskvöldið eftir hahaha týpískt !

Helgina eftir að saumó var komu Dóra ,Einar og Andrea  í sína 3 heimsókn ,alltaf jafn frábært að fá þau !!! Og alltaf jafn leiðinlegt þegar þau fara :whut: En við áttum frábæran tíma saman og styrkti maður magavöðvana hressilega með hlátursköstunum !

Takk allir fyrir heimsóknirnar !!!

Það er komin nýr meðlimur í fjölskylduna ,jamm við höfum fetað í fótspor fræga fólksins og ættleitt ...........reyndar kaninu ,sem við höfum ákveðið að nefna Ole ! Ole er ljósbrúnn og er algert krútt og fær að finna fyrir ást og umhyggju Antoníu á hverjum degi ,það verður ekki af henni tekið ,en Ole er mishress með það !!! En hann fær stundum að fara út í bandi og er mikið hress með það !

En nóg af okkur i bili ..........hilsen Inger


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.08.2007 19:53:10 / Tony

Menningarlegur margbreytileiki .....

Ég nefndi það einu sinni hérna á blogginu að ég héldi að ég hafi náð að skilja óheppnina eftir á Íslandi ....ekki veit ég hvernig mér datt það í hug !!!

Kíktum útá lífið í gær með hressu fólki ,Finni og Hönnu ,mjög gaman . En kvöldið byrjaði þó þannig að við stöndum útá Nörreport station að bíða eftir þeim ,dettur þá ekki hællinn undan skónum mínum bara sí svona...var ekki einu sinni að labba ! Við máttum tilkynna þeim það þegar þau komu að ég yrði að byrja á því að fara aftur heim í nýja skó ! Ákváðum við nú samt að prufa að fara í sjoppu eina og ath. hvort að til væri einhverskonar Crazy-glu til að líma hælskrattann aftur á. Nei ekki var nú til lím en sjoppumaðurinn sagði okkur að það væri hamar og naglar á borði útí horni (ekki veit ég hvers vegna ) Reyndum við að negla hælinn á en ekkert gekk .....sjoppumaðurinn vildi ólmur fá að prófa líka að koma hælnum á en ekkert gekk ,honum var nett sama þó að það væri röð af fólki við kassann ,hann ætlaði að koma hælnum á ! Allir störðu á manninn :-)

Hællinn komst ekki á en minn heittelskaði brunaði með taxa heim að ná í nýja skó handa konunni en á meðan löbbuðum við hin 3 í Kongenshave þar sem við settumst niður og drukkum rauðvín . Ég er ekki frá því að vinstri kálfinn á mér sé orðinn eins og á atvinnumanni í fótbolta því það tekur jú á að labba á hælaskóm ......með einum hæl !!!   Gvendur kom svo fljótt aftur með skó í poka og áttum við frábæra menningar nótt í Kaupmannahöfn !


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16